Um okkur
Um okkur
Saga og rætur fjölskyldufyrirtækis
Svansprent var stofnað árið 1967 af hjónunum Jóni Svan Sigurðssyni og Þuríði Ólafsdóttur og hefur allt frá upphafi verið í eigu sömu fjölskyldunnar. Í dag starfa þrír ættliðir hjá fyrirtækinu og starfsfólk sem hefur fylgt fyrirtækinu í áratugi.
Upphaflega var prentsmiðjan staðsett í Skeifunni 3, en árið 1973 flutti hún í eigið húsnæði að Auðbrekku 12 í Kópavogi, þar sem hún starfar enn í dag. Fljótlega eftir flutninginn var húsnæðið stækkað vegna aukinna umsvifa og vaxandi verkefna.
Á fyrstu árum var aðeins unnið með eina einlita prentvél og starfsfólkið fámennt, en lengi vel voru um 10 starfsmenn að störfum. Í dag starfa rúmlega 20 sérhæfðir starfsmenn hjá Svansprenti sem búa yfir mikilli fagkunnáttu og reynslu. Fyrirtækið býður upp á bæði stafræna og offsetprentun með fullkomnum búnaði í háum gæðaflokki.

Stefna og þjónusta – Við hlustum, verkin tala
Hjá Svansprenti er áhersla lögð á persónulega þjónustu, skilvirk samskipti og faglegt verklag. Með því að hlusta af einlægni á viðskiptavini, koma starfsmenn á móts við þarfir hvers og eins með vönduðum og lausnamiðuðum hætti. Við trúum því að gæði, hraði og samskipti séu lykilatriði í árangursríkum verkefnum.
Starfsfólk Svansprents veitir ráðgjöf um val á pappír, framleiðsluleiðir og útfærslur. Öll tilboðsgerð og verðmat byggist á gagnsæi og tryggð, og öll samskipti eiga sér stað með sem fæstum milliliðum.
Við leggjum einnig ríka áherslu á að skapa góða vinnuaðstöðu og velferð starfsfólks, enda teljum við að ánægja og öryggi innan veggja fyrirtækisins endurspeglist í gæðum þjónustunnar út á við.
Svansvottun – Umhverfisábyrg prentun
Svansprent hlaut árið 2010 Svansvottun fyrir prentframleiðslu sína, sem er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna. Vottunin staðfestir að prentsmiðjan uppfylli strangar kröfur varðandi hráefni, orkunotkun, úrgangsstjórnun og áhrif framleiðslunnar á náttúruna.
- Að 95% efna í framleiðslu uppfylli vistvænar kröfur.
- Að stærsti hluti prentaðs efnis sé á Svanvottuðum pappír.
- Að afskurður sé lágmarkaður og hráefni nýtt með hagkvæmum hætti.

Fjölbreytt þjónusta og sterkt samfélag
Viðskiptavinir Svansprents – hvort sem er í opinbera geiranum eða einkageiranum – velja í sífellt ríkari mæli vistvænar lausnir. Það er okkur metnaðarmál að taka virkan þátt í sjálfbærri þróun og verndun umhverfisins fyrir komandi kynslóðir.
Svansprent þjónustar fjölbreyttan hóp viðskiptavina: frá smáfyrirtækjum og sjálfstæðum hönnuðum yfir í stórfyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög. Við sérhæfum okkur í bæði smærri verkefnum og umfangsmikilli framleiðslu, með sveigjanleika og lausnamiðaða nálgun að leiðarljósi.
Við tökum einnig virkan þátt í samfélaginu, meðal annars með stuðningi við listviðburði, samstarfi við verndaðar vinnustofur og þátttöku í menningarverkefnum í Kópavogi.
