Flutningsleiðir gagna | Svansprent

Flutningsleiðir gagna

Hægt er að senda okkur gögn á marga mismunandi vegu.

Best er að pakka gögnum (t.d. ZIP) áður en þau eru send yfir netið.
Flutningur gagna og skjala á neti

Tölvupóstur

Tölvupóstur –  svansprent@svansprent.is

Tölvupóstur er þægileg leið til að senda gögn, þó eru takmörk hversu stór skjöl hægt er að senda með tölvupósti. Misjafnt er hvað póstþjónar leyfa, en póstþjónn Svansprents tekur við allt að 30 MB skjölum.

Það er ágæt regla að pakka gögnum áður en þau eru send yfir netið.

Gagnaþjónn

Gagnaþjónn Svansprents –  svansprent.is/ftp

Gagnaþjónn Svansprents er auðveld og notendavæn leið til að senda okkur gögn. Hentar fyrir allar stærðir skjala; hraði getur orðið allt að 950 MB/klst en fer eftir tengihraða viðskiptavinar.

  • Gestum er veittur takmarkaður aðgangur með því að gefa upp netfang sem aðgangsorð.
  • Fyrir reglulega notkun mælum við með úthlutuðu notendanafni – sendu póst á svansprent@svansprent.is.

Skráarþjónn (FTP)

FTP skrárþjónn –  ftp://ftp.svansprent.is

FTP skrárþjónn er mjög hentug og hraðvirk leið fyrir allar stærðir skjala. Til að tengjast þarf FTP-forrit.

  • Gestaaðgangur: aðgangsorð gestur og netfang sem lykilorð.
  • Fyrir reglulega notkun: fáðu úthlutað notendanafni með því að senda póst á adstod@svansprent.is.

Diskar og USB lyklar

Einnig er hægt að koma með eða senda okkur gögn á geisladiskum, DVD-diskum eða á USB-lyklum.