Persónuverndarstefna Svansprents
Persónuverndarstefna
Flýtileiðir að köflum:
Hjá Svansprenti ehf., kt. 681073-0199, Auðbrekku 12, 200 Kópavogi er lögð rík áhersla á að tryggja áreiðanleika, trúnað og öryggi þeirra persónuupplýsinga sem fyrirtækið vinnur.
Þessi persónuverndarstefna er ætluð til upplýsinga um vinnslu fyrirtækisins á persónuupplýsingum, þ.á.m. hvaða persónuupplýsingum það safnar og nýtir og hvernig slíkar persónuupplýsingar eru geymdar.
Meðferð persónuupplýsinga byggist á lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Við vinnum aðeins með upplýsingar sem eru nauðsynlegar fyrir tilgreind markmið og tryggjum að meðferð sé lögmæt, sanngjörn og gagnsæ.

Hvaða upplýsingum söfnum við?
Þær persónuupplýsingar sem við söfnum velta á því hvaða þjónustu viðskiptavinur hefur óskað eftir og í hvaða tilgangi hann hefur nálgast okkur. Upplýsingar sem við getum safnað eru m.a.:
- Nafn, kennitala, netfang, símanúmer, heimilisfang og aðrar samskiptaupplýsingar.
- Kredit-/debetkortanúmer, reikningsupplýsingar og aðrar bankaupplýsingar.
- Viðskiptasaga, reikningaupplýsingar og aðrar upplýsingar til að sinna og afhenda pantanir.
- Greiðsluupplýsingar og dagsetningar á greiðslum.
- Samskipti við okkur: tölvupóstar, skilaboð, símtöl, bréf o.fl.
- Gögn um notkun vefsíðu (IP-tala, vafri, heimsóknir o.s.frv.).
- Gögn sem viðskiptavinir láta okkur í té, t.d. til prentunar.
Að öðru leyti aflar fyrirtækið upplýsinga beint frá viðskiptavinum, nema annað sé tekið fram. Gögn geta þó komið frá þriðja aðila, t.d. úr Þjóðskrá.
Hvernig notum við persónuupplýsingar?
- Til að veita þjónustu/vörur sem óskað er eftir og vinna pöntun.
- Til að svara beiðnum og fyrirspurnum.
- Til að upplýsa um þjónustu, breytingar eða tilboð.
- Til að senda reikninga vegna viðskipta.
- Til að meta lánshæfi viðskiptavina.
- Til að uppfylla lagalegar skyldur.
Miðlun persónuupplýsinga
Svansprent ehf. kann að miðla persónuupplýsingum til þriðja aðila sem veita þjónustu í tengslum við rekstur félagsins, t.d. endurskoðendur, lögmenn og ráðgjafa. Slík miðlun er byggð á lögmætum hagsmunum að úthýsa verkefnum.
Enn fremur kann miðlun til eftirlitsyfirvalda að eiga sér stað þegar skylt er samkvæmt lögum, stjórnvaldsfyrirmælum eða dómsúrskurði, t.d. til Fjármálaeftirlitsins, Ríkisskattstjóra eða lögreglu.
Þriðju aðilar
Stefnan nær ekki til vinnslu þriðja aðila sem við höfum enga stjórn á. Við hvetjum þig til að kynna þér persónuverndarstefnur þeirra, t.d. Facebook, Apple, Google, Microsoft og greiðsluþjónustur sem þú kýst að nota.
Hvernig tryggjum við öryggi persónuupplýsinga?
Við tökum viðeigandi tækni- og stjórnsýslulegar ráðstafanir til að vernda gögn gegn óviðkomandi aðgangi, breytingum, birtingu eða eyðingu. Aðgangur er takmarkaður við þá starfsmenn sem þurfa á honum að halda.
Gögn eru geymd í aðgangsstýrðum tölvukerfum með reglulegum uppfærslum og vöktun. Við tilkynnum tafarlaust ef öryggisbrot kemur upp sem hefur í för með sér verulega áhættu.
Hve lengi varðveitum við upplýsingarnar?
Við varðveitum ekki persónuupplýsingar lengur en þörf krefur eða lög kveða á um.
Réttindi einstaklinga
Þú hefur m.a. eftirfarandi réttindi:
- Rétt til aðgangs að gögnum (afrit).
- Rétt til leiðréttingar á röngum upplýsingum.
- Rétt til eyðingar þegar meðferð er ólögmæt eða óþörf.
- Rétt til að mótmæla vinnslu byggðri á lögum eða samningi.
Hafðu samband á adstod@svansprent.is ef þú vilt nýta réttindi þín eða hefur spurningar.
Breytingar á stefnu
Við áskiljum okkur rétt til að breyta persónuverndarstefnu. Breytingar verða birtar á vefsíðu okkar og taka gildi við birtingu. Við hvetjum þig til að skoða síðuna reglulega.