Borðstandar (Kynningarefni)

Borðstandar eða A-standar eru sígild og áhrifarík leið til að miðla skilaboðum á skýran og sjónrænan hátt. Þeir eru fullkomnir fyrir tilboð, dagskrár, leiðbeiningar eða velkomin skilaboð og hentar fyrir verslanir, veitingastaði, viðburði eða stofnanir.
Við prentum borðstanda í ýmsum stærðum og útfærslum, með vönduðum prentgæðum og veðurþolnum frágangi ef þörf krefur.
Skýr og litsterk prentun
Stærðir og frágangur sniðinn að þínum þörfum
Hægt að fá með veðurvörn og plastvörn fyrir notkun utandyra
Borðstandar eru hagnýt lausn til að fanga athygli.
Hér eru leiðbeiningar til þess að hjálpa þér að byrja hönnunarferlið!
„Skurðarlína“ er þar sem prentgripurinn verður skorinn í rétta stærð.
„Örugg lína“ er 3mm allan hringinn á prentgripnum þar sem engar mikilvægar upplýsingar mega koma fram þar sem þær geta skorist af í skurði.
„Blæði“ er 3mm út fyrir skurðarlínu ef að heilir litafletir eða myndir eiga að ná út fyrir prentgripinn.
Ef ekkert blæði er, þá getur komið fyrir að það myndist hvít lína þar sem prentgripurinn er skorinn í rétta stærð.
Blæði
Örugg lína