Persónuverndarstefna Svansprents
Persónuverndarstefna

Persónuverndarstefna
prenti ehf., kt. 681073-0199, Auðbrekku 12, 200 Kópavogi er lögð rík áhersla á að tryggja áreiðanleika, trúnað og öryggi þeirra persónuupplýsinga sem fyrirtækið vinnur.
Þessi persónuverndarstefna er ætluð til upplýsinga um vinnslu fyrirtækisins á persónuupplýsingum, þ.á.m. hvaða persónuupplýsingum það safnar og nýtir og hvernig slíkar persónuupplýsingar eru geymdar.
Meðferð persónuupplýsinga byggist á lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Við vinnum aðeins með upplýsingar sem eru nauðsynlegar fyrir tilgreind markmið og tryggjum að meðferð sé lögmæt, sanngjörn og gagnsæ.
Hvaða upplýsingum söfnum við?
Þær persónuupplýsingar sem við söfnum velta á því hvaða þjónustu viðskiptavinur hefur óskað eftir og í hvaða tilgangi hann hefur nálgast okkur. Upplýsingar sem við getum safnað eru m.a.:
- Nafn, kennitala, netfang, símanúmer, heimilisfang og aðrar samskiptaupplýsingar sem viðskiptavinir veita okkur.
- Kreditkortanúmer, debetkortanúmer, reikningsupplýsingar og/eða aðrar bankatengdar upplýsingar sem viðskiptavinir veita okkur.
- Upplýsingar sem tengjast viðskiptum og greiðslum, svo sem viðskiptasaga, reikningaupplýsingar og aðrar upplýsingar sem við þurfum til að geta sinnt og afhent pantanir.
- Greiðsluupplýsingar og reikningsviðskiptaupplýsingar – s.s. dagsetningar á greiðslum.
- Samskipti sem viðskiptavinur velur að eiga við okkur, s.s. tölvupóstar, skilaboð send í gegnum vefviðmót, hljóðrituð símtöl, bréf eða önnur samskipti.
- Gögn um notkun vefsíðu skrárþjóns, IP-tölu og fleira til að bæta þjónustu okkar og tryggja öryggi kerfisins.
- Þau gögn sem viðskiptavinir láta okkur í té, til frekari vinnslu, svo sem til prentunar.
Að öðru leyti en tekið er sérstaklega fram í stefnu þessari aflar fyrirtækið persónuupplýsinga beint frá viðskiptavinum. Upplýsingar kunna þó jafnframt að koma frá þriðja aðila, t.d. úr Þjóðskrá.
Þú getur skoðað og notað vefsvæði Svansprents ehf. án þess að gefa upp nokkrar persónulegar upplýsingar...
Hvernig notum við persónuupplýsingar?
- Að veita þjónustu og/eða vörur sem óskað er eftir, til dæmis með því að vinna pöntun.
- Vinna úr og/eða svara beiðnum og fyrirspurnum sem okkur berast.
- Upplýsa um og bjóða tiltekna þjónustu, breytingar á henni eða sérstök tilboð.
- Senda reikninga vegna viðskipta við okkur, svo sem vöru-og/eða þjónustukaup.
- Meta lánshæfi viðskiptavinar.
- Að uppfylla lagalegar skyldur sem kunna að gilda um okkar starfsemi.
Miðlun persónuupplýsinga
Svansprent ehf. kann að miðla persónuupplýsingum til þriðja aðila sem veita félaginu þjónustu...
Þar að auki kann félagið að miðla persónuupplýsingum til eftirlitsyfirvalda þegar félaginu er það skylt...
Þriðju aðilar
Persónuverndarstefnan nær ekki til upplýsingaöflunar eða vinnslu þriðja aðila...
Hvernig tryggjum við öryggi persónuupplýsinga
Við tökum viðeigandi tækni– og stjórnsýslulegar öryggisráðstafanir til að vernda persónuupplýsingar...
Við munum tilkynna þér án ótilhlýðilegrar tafar ef það kemur upp öryggisbrot...
Hve lengi varðveitum við upplýsingarnar?
Við varðveitum persónuupplýsingar ekki lengur þörf krefur eða lög kveða á um eyðingu þeirra.
Réttindin þín sem einstaklingur
- Rétt til aðgangs: Réttur til að fá afrit af þeim upplýsingum sem við höfum um þig.
- Rétt til leiðréttingar: Réttur til að fá leiðréttingar á upplýsingum sem eru rangar eða óuppfærðar.
- Rétt til eyðingar: Í tilvikum þar sem upplýsinga er ekki lengur þörf eða meðferð þeirra er ólögmæt, getur þú óskað þess að þeim verði eytt.
- Rétt til mótmæla: Réttur til að mótmæla meðferð upplýsinga sem byggir á löggjöf eða samningi.
Ef þú vilt nýta þér réttindi þín eða hefur spurningar varðandi meðferð persónuupplýsinga, vinsamlegast hafðu samband við okkur á netfangið adstod@svansprent.is.
Breytingar á persónuverndarstefnu
Við áskiljum okkur rétt til að breyta þessari persónuverndarstefnu. Allar breytingar verða birtar á vefsíðu okkar og taka gildi þegar þær hafa verið birtar. Við hvetjum þig til að kíkja reglulega á þessa síðu til að fylgjast með breytingum.