Velkomin í Svansprent

Svansprent hefur verið leiðandi í prentun allt frá stofnum fyrirtækisins árið 1967. Hjá okkur starfa um 20 manns, mest fagmenn með áralanga reynslu að baki. Við leggjum áherslu á góða vinnuaðstöðu og vinalegt andrúmsloft enda er ánægt starfsfólk grunnur að góðu fyrirtæki.

Stefna okkar hefur alltaf verið að bjóða viðskiptavinum fjölbreyttar lausnir á bestu fáanlegu verðum. Hjá Svansprent færðu persónulega þjónustu, allt frá því að verkefni kemur í hús þar til það er afgreitt.